my own little world...

25.11.2007 18:17:23 / sykurpudinn88

jóla hvað???

Jæja þá er mann komin í geggjað jólaskap þökk sé vinnunni... jólaseríurnar í Hagkaup láta mann næstum fá ofbirtu í augun og jólalögin eru á repeat allan daginn :S æ ég veit ekki mér finnst etta ALLTOF snemmt ég meina þeir voru farnir að skreyta í byrjun nóvember eða eikvað... 8| þúst við naugðum jólunum svo svakalega að þegar þau loksins koma er enginn lengur í jólastuði,  er bara komin með ógeð á þessu öllu og getur ekki beðið ettir að þetta stúss sé búið...:( Það að vísu eru komnar upp nokkrar jólaseríur hérna heima og akkurat núna erum við að hlusta á nýja jóladiskinn með Ladda en það er líka næstum því að fara að koma desember.. Annars er bra mest lítið að frétta... Viktor "mömmustrákur" er ennþá hjá okkur og ég er eiginlega búin að ákveða það að ef að vinur hans Pása vill fá hann attur þá atla ég að segja nei... :lol: kannski soldið ljótt af mér en ég bra sé þa að Viktori líður svo vel hjá okkur og so erum við so ánægð að hafa hann, ég meina hann er eiginlega bra orðinn litla barnið okkar 8) og ekki lætur mar barnið sitt frá sér er það?? So eru tengdó á leiðinni til okkar :D buðum þeim í mat og solleiðis... Mér að vísu finnst soldið spes hvað þau hafa mikið samband af því í minni familiu þá er ekkert verið að hafa mikið samband nema að það sé eikvað að.. fyrir utan mig og ömmu;) Hurru já so hringdi gamlinn (pabbi) í morgun og var að spá í að kíkja á okkur í dag af því hann var að fara austur á vík en ég efast eiginnlega um að hann komi. Ég er búin að vera að bjóða honum í heimsókn núna síðasta mánuð en það er alltaf eikvað sem kemur uppá:$ en ég nenni ekki að spá í því og nýt bra lífsins með bangsakrúttinu mínu (hehe hann aðvísu vill ekki að ég kalli hann þetta en mér finnst þa sætt:haha: ) æ vitiði ég held að ég sé bra farin að bulla eikvað og þetta sé ekkert í samhengi hjá mér þannig að ég ætla að fara að.... taka til eða fara með Viktor út eða eikvað áður en tengdó kemur....

Og Jóhanna og Kjartan ef þið sjáið etta þá endilega bjallið í mig... minns er farin að sakna ykkar:!: bra er alltaf að vinna til 7 og so á minns ekki inneign þannig... call me beibís :P


» 1 hafa sagt sína skoðun

20.11.2007 22:08:37 / sykurpudinn88

jarðskjálftar

ég sit hérna ein á gólfinu heima hjá mér (þannig að ég nái í netið;) og er gjörsamlega að skíta á mig úr hræðslu út af essum helvítis skjálftum....:$ Sá sterkasti var 3,5 á richter og þar sem við erum uppá 4 hæð að þá finnum við betur fyrir þeim... So er Pási bra að gera grín að mér af því mig langar að fara til ömmu og afa og vera hjá þeim :S en annars er bra fínt að frétta... ég er að vinna í Dýrabæ í Smáralindinni og so erum við líka með búð uppí Hlíðarsmára fyrir ofan Smáralindina þar sem við erum með hundasnyrtistofu og þa er rosafjör... mar verður að vísu soldið þreyttur á að þvo hunda en etta er fínt... :D Við erum so að spá í að fara eikvert út ettir áramót.. kannski til London eða eikvað... hlakka ógisslega til 8) en já ég atla að fara að gera eikvað þannig að ég nái að hætta að spá í essum skjálftum...

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

07.11.2007 00:27:27 / sykurpudinn88

jæja...

Ætli það sé ekki komin tími á að mar bloggi attur... það er samt ekkert eikvað spes að frétta skomm... Við Pási búum ennþá á Selfossi og erum að vinna í bænum. Erum búin að vera saman í hálft ár síðan 5nóv :) hmmm so erum við komin með hund (man ekki hvort eg var búin að skella því hérna inn) en já við semsagt erum að "passa" hund fyrir vin hans Pása og erum búin að vera með hann núna í eikverja 2 mán... er eiginlega farin að vonast til þess að gaurinn ætli ekkert að taka hann attur... :)get valla ímyndað mér að hafa heimilið hundalaust :lol: so var ég að kíkja á auglýsingar um daginn og sá au pair dæmi.. mín náttlega hafði samband og kallinum leist alveg geggjað vel á mig... Etta er í Norður Karólínu og þúst ég yrði með krakkana í eikverja 3tíma á dag og annars get ég bra gert þa sem mér sýnist.. hangið í símanum eða eikvað.. so er alveg velkomið að Pási myndi koma út og vera hjá mér í eikvern tíma... En ég er ennþá að spá í essu og líka að bíða ettir svari... Ég og Pási erum sona að tala um etta en ég er ekki vis sum að ég hefði efni á því að fara út... So er ég líka eigilega pottþétt á því að þá myndi elskan mín detta í það attur og finnst þa eigilega ekkert svakalega sniðugt.. :$ So er heimilið eigilega orðið gegt snobblegt... allt eigilega alveg nýtt 8| manni líður bra eins og maður skíti peningum.... :haha: fengum t.d. geggjaðan tungusófa í gær... Kostar nýr eikvað um 150þús úr húsgagnahöllinni og við fengum hann gefins... þúst etta er 2ára sófi og þa sést ekki á honum... Núna vantar manni bra flatskjá og þá er etta komið :) en ég nenni essu ekki lengur og atla að fara að sofa.. svaf yfir mig í gærmorgun og vinnuveitandinn var ekkert sérstaklega sáttur þannig...

Haldið áfram að hafa samband esskurnar:P


» 0 hafa sagt sína skoðun

09.10.2007 21:25:43 / sykurpudinn88

vúbdídú... vinna

vúhú... er loksins komin með vinnu... að vísu gerðist þa fyrir 2 vikum eða eikvað :S er búin að vera soldið löt að blogga þar sem þa lítur allt út fyrir að enginn nenni að lesa þetta.... en anyway er að vinna í gæludýrabúð í Smáralindinni frá 12 til 7 á virkum dögum og so aðra eða þriðju hverja helgi... so er ég annað slagið upp í Hlíðarsmára þar sem önnur búð er og er þá að snyrta hunda... ýkt stuð :D en já er alveg sjú mig langar svo í cavalier oh þeir eru so mikil krútt.. 8) en já er bra heima veikur að horfa á cartoon network fékk að fara fyrr heim í dag... er búin að vera að kasta upp og með hita og eikvað... en atla að halda áfram að horfa á Ed, Edd and Eddy :haha:

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

22.09.2007 23:08:43 / sykurpudinn88

einn sætur

Heyrði gegt sætan brandara um daginn sem ég bra verð að deila með ykkur:

Gamaltpar sat uppí rúmi og var að kela. Gamla konan hvíslar í eyra kallsins og hann stekkur upp, nær í haglarann og þýtur upp á þak. Þegar hann loksins kemur til baka spyr kellingin hvert í andskotanum hann hefði farið. Kallinn horfir á hana og segir :"Sagðiru ekki að það væri rjúpa á þakinu?" "Andskoti ertu orðinn heyrnalaus, ég sagði á ég að krjúpa eða vera á bakinu" :)

 Bara krúttlegt... fegin að ég sé ekki orðin gömul og lendi ekki í þessu....


» 3 hafa sagt sína skoðun

22.09.2007 19:57:26 / sykurpudinn88

So sober...

Jæja ég er með geggjaðar fréttir... Ég og Pási erum búin að ákveða að hætta að drekka :haha: og á ég að segja ykkur hvað okkur gengur vel?? etta er alveg annar dagurinn :lol: so erum við komin með hund... eða sona eigilega erum að passa fyrir vin hans Pása og ég komst að því að hundinum finnst ég ekkert spes... hversu slæmt er þa?? þúst við erum að tala um það að hann beit mig næstum því um daginn og svo er ég öll útí klórförum ettir hann :$ Pási var gegt sætur í gær.. þegar hann kom heim úr vinnunni kom hann með gegt sæt blóm handa mér... er eigilea pottþétt viss um að það er af því við vorum að rífast um daginn.... nei smá djók... en já hann er eikvað að reka á ettir mér að fara út þannig

» 0 hafa sagt sína skoðun

21.09.2007 17:58:06 / sykurpudinn88

andskotans...

vá hvað ég þoli ekki að eiga engan pening!!!:evil: þúst að hafa ekki efni á að gera rassgat...þúst ég er búin að vera að sækja um vinnu hérna á Selfossi í meira en 2 vikur og þegar ég fer að tékka á hvernig staðan er þá er mér bra sagt að slaka á og vera róleg, þau myndu hringja í mig... þúst hvaða kjaftæði er það??? ég er eiginlega alveg búin að gefast upp á því að fá mér vinnu hérna þannig ég verð bra að finna eina í bænum.... So er Pási að verða geðveikur á því að búa hérna á Selfossi... segir að maður sé so fastur hérna og að það sé ekkert hægt að gera.. jújú þa er alveg satt en ég meina við höfum bra ekki efni á því að búa í bænum... 8| æji ég er bra eikvað ógisslega pirruð á essu en ætla að hlífa ykkur við því þannig ég ætla að hætta núna.... þið megið nú samt alveg fara að kvitta þannig ég sjái hvort að það sé eikver að fylgjast með þessu rugli í mér...

adios mi amigos


» 0 hafa sagt sína skoðun

17.09.2007 17:40:43 / sykurpudinn88

réttarball...

ok á laugardaginn fórum við uppí Tungur og ætluðum í réttir... sem betur fer sváfum við aðeins yfir okkur og vorum ekki komin upp ettir fyrr en allir voru farnir og vá var ég fegin af því ef við hefðum náð fyrir réttir hefðum við ábiggilega þurft að hjálpa frændfólki hans Pása að reka heim sem ég er svo fegin að við sluppum við af því það var ógissleg snjókoma og rok... Við stoppuðum í kjötsúpu hjá ömmu hans Pása og vá þa er alveg besta kjötsúpa sem ég hef fengið lengi... namminamm:haha: Um kvöldið fórum við síðan yfir til frændfólks Pása þar sem flest allir voru byrjaðir að drekka og gera sig klára fyrir réttarballið sem var í Reykholti.. Það var að vísu eftir það sem við föttuðum að það var bara einn driver en við vorum í kringum 10 sem vorum að fara.. Það reddaðist að vísu og allir komust á ballið sem vildu... :) Mér að vísu hundleiddist þar :S og var eiginlega bara edrú þannig við Pási fórum bra heim til ömmu hans um hálftvö þar sem við gistum.... Ég hefði miklu frekar viljað fara á réttarballið uppí Árnesi en það var ekki hægt af því pási var í bænum alveg fram á nótt þannig... En já við vorum síðan fengin í það að smala fénu inn hjá frændfólki hans og svo loksins fórum við heim á selfoss... ;) Í morgun þegar ég vaknaði var mín so bra orðin veik þannigég er ekkert búin að gera neitt spes í dag... En hérna geriði mér nú einn greiða og skrifið í gestabókina... Mér finnst eins og ég sé bra að "tala" við sjálfa mig hérna... :S

» 1 hafa sagt sína skoðun

14.09.2007 18:35:44 / sykurpudinn88

jólajól....

wúbbdídú... sit ein heima að bíða ettir kallinum og föndra jóladót... :) Pási hélt að ég væri orðin eikvað skrýtin (eða sona meira heldur en venjulega) þegar ég sagði honum að ég ætlaði að fara að föndra jóladót... Hann er núna í bænum að vinna og ég hef eiginlega ekki hugmynd um hvenar hann kemur heim... Hann sagðist að vísu ætla að koma snemma en ég veit ekki hvort ég eigi að trúa því:S Hann fór nebblega í gær upp á Tonys þar sem við erum (vorum) að vinna og so klukkutíma seinna var minn bra lagður af stað í bæinn og datt ekki í hug að láta mig vita fyrr en hann var komin uppá heiði og þá þorði hann því ekki af því hann hélt að ég myndi verða so fúl... Enda var þa alveg rétt hjá honum og ég hafði líka góða ástæðu til þess.. Ég nebblega veit það að ef hann fer í bæinn án mín að þá kemur hann ekkert heim fyrr en daginn ettir eða eikvað... :evil: Hann var að vísu gegt sorry yfir því og lofaði öllu fögru en ég veit ekki hvort ég eigi að treysta því... Ég er að spá í að reyna að draga hann með mér austur á Breiðdalsvík næstu eða þarnæstu helgi af því ég sakna so krakkanna þar... Og ég er að deyja mig langar so í fótbolta með þeim :D ég að vísu var að fá alveg æðislegar fréttir... Karen fóstursystir mín fyrir austan er ólétt :haha::haha: en jæja ég er að spá í að hætta þessu rugli, fara í sturtu og halda áfram að föndra...

See ya next time darlings:P


» 0 hafa sagt sína skoðun

13.09.2007 20:41:18 / sykurpudinn88

well here i go again

jæja ætli ég reyni ekki að gera þetta einu sinni enn... það er alveg hellingur að frétta og ég skal reyna að muna ettir því öllu... :) Sko fyrir það fyrsta er ég hætt með Hlyni og það er alveg slatti síðan.. það var á ammælinu mínu í febrúar síðastliðnum. hmm... Sko ég og Gunni og vinur hans fluttum í litla holu í Garðabænum fyrir nokkrum mánuðum. Ég byrjaði að vinna hjá öryggisgæslunni og var oftast í 10-11 þanna uppí garðabæ. Þetta var æðisleg vinna og gegt skemmtilegt fólk sem var að vinna með mér... En já eina nóttina (ég var sko alltaf ein á næturvöktum) kom gaur sem að ég þekkti... Það var Pási sem ég var með fyrir 5árum. Hann kom inn, tók ettir mér en var ekki alveg viss um hva hann átti að gera en svo labbaði hann til mín, kyssti mig og sagðist aldrei ætla að missa mig attur!!!:) ógisslega sætt... okey so fór hann en sagði að ég ætti að hringja í hann þegar ég væri búin að vinna... þegar ég kom svo loksins heim var ég ekki alveg viss hvort ég ætti að hringja í hann af því eins og sumir muna var hann ekki einn af þessum saklausu góðu strákum... en jæja ég hringdi í hann og hann sagðist ætla að koma... klukkutíma seinna var hann ekki komin og var eiginlega alveg viss um að hann myndi bra beyla á mér og var orðin soldið sár... akkurat þá var bankað og þá var það hann... hann hafði lent í bílslysi á leiðinni til mín en náði að redda sér... spáiði í því.. nýbúin að lenda í bílslysi (frekar alvarlegu meira að segja, húddið á bílnum sem hann var á endaði eiginlega í framsætunum) en kom samt til mín... :haha: anyway... daginn eftir flutti hann inn til mín og það eru komnir 4 mánuðir síðan. :D Við búum núna á Selfossi í íbúðinni sem ég keypti mér í fyrra og erum bæði að leita okkur að vinnu hérna.. :P

Ég var rosa flott á því um daginn... Vinur hans Pása er að breyta aðeins til heima hjá sér og við fórum að hjálpa honum að rífa niður veggi og loftið og það var ýkt gaman... Ég hef nebblega aldrei mátt hjálpa til við neitt sona af því ég er svo lítil og aum og náttlega af því ég er stelpa en nei nei mín tók sig bra til, tók sleggju, klifraði upp í stiga og byrjaði að rífa niður loftið og vá er  það gegt góð leið til að fá útrás :haha: so að vísu lenti ég í smá vandræðum... var nebblega búin að klifra uppá loftið (það sem var ettir að því;) og þorði síðan ekki niður.. strákarnir voru farnir útí bílskúr að gera við eikvern bíl og ég alein inni... en sem betur fer kom vinur hans Pása og hjálpaði mér en vá leið mér eins og asna :$ so er ég farin að vita gegt mikið um bíla og bílaviðgerðir og solleiðis... var ýkt stolt af mér um daginn þegar ég náði að tengja geislaspilarann og framhátalarana alveg ein... og það er eikvað sem ég veit að ekki allir geta gert.. :P

en já við erum semsagt nýkomin með netið þannig ég er að spá í að notfæra mér það að Pási sé ekki heima og leika mér á því...

See ya soon suckers.... bara grínast luv ya all


» 0 hafa sagt sína skoðun


RSS tengill